Fimleikar
# Nafnlaus frásögn
Það eru til ofbeldissögur af öllu tagi í fimleikum. Ég hef heyrt um fleiri sögur en mína þar sem þjálfarar beita líkamlegu eða andlegu ofbeldi. Stundum eru þetta erlendir þjálfarar með öðruvísi bakrunn eins og í mínu tilfelli.
Erfiðleikar í hjónabandinu skiluðu sér inn á æfingar
Ég lenti í erlendum þjálfara sem beitti mig andlegu kynferðislegu ofbeldi. Hann byrjaði að þjálfa mig þegar ég var 14-15 ára og þjálfaði mig í sex ár. Þjálfararnir voru hjón sem höfðu strax mikinn áhuga á mér. Þau kunnu að meta hvað ég lagði mig mikið fram og sáu að ég gæti unnið fyrir því að ná árangri þó ég væri ekki best í fimleikum á þessum tíma. Minn fjölskyldubakrunnur er erlendur og voru þjálfararnir frá sama landi. Á þessum tíma lærði ég helling í tungumálinu frá þeim. Ég lærði mikið af ljótum orðum á þessum tíma. Ég skildi hvað þau sögðu en hinar stelpurnar ekki.
“hún er búin að fitna svakalega”
Fimleikahópurinn og hjónin eyddum miklum tíma saman daglega vegna æfinga. Hjónin áttu í erfiðleikum með að eignast börn, og áttu í rifrildum vegna þess og án efa annara hluta. Þessir erfiðleikar í hjónabandinu skiluðu sér inn á æfingar sem bitnaði á okkur stelpunum. Öll vandamál þeirra beindust að okkur. Hann lét okkur heyra það.
Þau voru góðir þjálfarar og eftir þrjú ár náðum við bætingum og árangri á stærstu mótum landsins. Ég var komin í landsliðið. Á sama tíma var verið að eyðileggja andlegu hliðina okkar. Eftir þrjú ár versnaði þetta rosalega. Hann talaði mjög niðrandi um okkur, mikið á okkar tungumáli.
“Svo feit að enginn strákur vill hana”
Þegar ég stóð við magnesíum dallinn, þá vissi hann að ég skildi og sagði “rosalega er þessi orðin feit… svo feit að enginn strákur vill hana”. Ég held andliti og faldi það sem hann raunverulega sagði. Ef stelpurnar spurðu mig hvað hann hefði verið að segja. Þá sagði ég til dæmis “Hann var að segja að við ættum að gera fjórar umferðir af þessari æfingu”. Ég var alltaf að fela þetta, mér fannst það vera mín ábyrgð.
Þegar hann sagði þessa óviðeigandi hluti sem þjálfari á aldrei að segja þá var hann alltaf með ákveðin tón í röddinni. Hann hefði alveg eins getað verið að segja “mikið var veðrið gott í dag” í staðinn fyrir “rosalega er hún með flottan rass”, “hún er búin að fitna svakalega” … en sagði þetta upphátt og vissi alltaf að ég skildi þetta.
Það er eitt sem ég næ ekki í dag með sjálfa mig, hvernig ég náði að útiloka þetta. Ég bara fór á tvíslánna og gerði mitt. Fór heim og grét og mætti daginn eftir og hélt áfram að æfa. Mamma tók eftir að ég var aldrei glöð lengur.
Ég man að ég fékk tár í augun en þurfti að halda í mér.. það var þriggja og hálfs tíma æfing framundan
Andrúmsloftið breyttist smám saman með tímanum. Ein stelpan byrjaði að mæta í fleiri flíkum á æfingu. Eftir að þjálfarinn nefndi að hún væri búin bæta á sig og þyrfti að gera eitthvað í því til að líkaminn hennar myndi ekki meiðast. Hann meinti vel, en það er óþægilegt að heyra svona hluti um okkur á þessum aldri þegar líkaminn er að breytast og sjálfsmyndin ekki nógu sterk. Þetta hafði mikil áhrif á andlegu hliðina okkar allra. Við vorum alveg meðvitaðar um að við hefðum þyngst eða bætt á okkur þegar það gerðist. Það er aldrei gaman að heyra það, við skömmuðumst okkar.
Á þessum tíma eru stelpurnar 15-20 ára og líkaminn er að breytast. Við vorum að raða upp fyrir framan þjálfarann og ég heyri hann segja að þessi stelpa væri orðin eins og svín (á okkar tungumáli). Ég man að ég fékk tár í augun en þurfti að halda í mér.. það var þriggja og hálfs tíma æfing framundan.
Ætluðum aldrei að segja frá
Á morgunæfingu segir hann við mig “ef ég væri yngri mundi ég vilja setja í þig”. Hann nefndi þetta í samhenginu að ég væri svo sæt stelpa og ég stend mig svo vel og er að gera góða hluti í lífinu og að ef hann væri kærasti minn myndi hann gera það. Hann meinti þetta sem svona “pepp” eða hvatningu við mig að hrósa mér að eg væri flott stelpa.
Við bættum okkur allar persónulega og meðal annarra keppenda á Íslandi. Og vorum með háttsett markmið. Við vildum ekki taka áhættu með neitt og ætluðum aldrei að segja frá.
“ef ég væri yngri mundi ég vilja setja í þig”
Ég hataði þetta. Á æfingu gerði ég 9 rétta hluti af 10 en ég rakkaði mig niður fyrir þennan eina hlut sem ég gerði vitlaust. Á hverri morgunæfingu var ég vigtuð, stundum gleymdi ég að pissa og vigtin sagði að ég væri búin að bæta á mig 200 grömmum. Þá var ég send inn í íþróttasal að hlaupa ferðir í þyngdarvesti fyrir framan handboltastrákana sem mér fannst mjög niðrandi. Svo fór ég heim og vildi ekki borða. Ég fékk leyfi til að taka námið mitt sem fjarnám á síðasta árinu mínu í menntaskóla til þess að æfa meira og mæta á morgunæfingar með þjálfaranum.
Út á stórmót ein með þjálfaranum
Ég fór í ferð árið 2013 ein með þjálfaranum. Við settumst upp í flugvél og hann byrjaði að lýsa ítarlega hvernig kynlífi hann vildi stunda með konunni sinni. Kvöldið áður höfðu hjónin rifist og hann lét það ósætti í ljós en mér fannst það ekki koma mér neitt við. Og fannst óviðeigandi að hann væri að segja mér þetta.
Tárin byrjuðu að leka á andliti mínu. Ég sneri andlitinu að glugganum svo hann sæi að ég væri ekki að gráta. Hann hélt áfram að tala. Ég hugsaði að þetta væri það sem koma skal næstu 10 daga í þessari ferð. Ég að fara að keppa á þessu stórmóti.
Ég meiðist illa á mótinu og fer á sjúkrahús. Þjálfarinn tekur af mér símann og leyfir mér ekki að hringja í mömmu og pabba. Hann vildi ekki að ég myndi skapa óróa heima. Ég var meira brotin yfir því að ég fengi ekki að keppa, þetta átti að vera árið mitt. Ég var búin að leggja svo mikla vinnu í að komast á þennan stað.
Hann býðst til að gista með mér í íbúðinni sem ég gisti í, þessa nótt sem ég afþakka. Ég var búin að vera mjög leið yfir að hafa meiðst. Eftir að ég næ í símann sendi eg mömmu strax sms að ég hafi meiðst á æfingu og væri ekki að fara að keppa. Mamma hringir beint í hann og spyr af hverju við sögðum ekki strax frá og hvort ég sé í lagi. Hann horfði á mig og sagði “sko þú skapar bara panikk með þessu”.
Um kvöldið þegar ég kom heim af sjúkrahúsinu skrifaðist ég á við mömmu í símanum lengi frameftir. Vegna þess að það var nokkurra klukkutíma tímamunur þar sem ég var og heima a Íslandi. Ég var með endalaust af hugsunum í gangi yfir slysinu fyrr um daginn, svekkt yfir að geta ekki keppt, hrædd um áframhaldið ef meiðslin væru mjög alvarleg. Það var HM framundan um haustið og ég var byrjuð að hugsa um hvort ég myndi ná að keppa þar.
Áður en ég veit af er ég búin að skrifa til mömmu allt sem hafði gerst í flugvélinni og hvað hann hafði verið að segja við mig. Hún tekur mynd af samtalinu (screenshottar).
Kona í stjórn hágrét
Nokkrum vikum seinna segi ég konu í stjórn allt sem hafði gerst síðustu sex ár. Þetta var fjögurra tíma fundur þar sem hún hágrét. En ég var köld í framan allan fundinn og sagði meðal annars hvað hann hefði sagt við mig: “ hann langar að setja í mig, sofa hjá mér ef hann væri á sama aldri og ég”.
Þetta var kynferðislegt andlegt ofbeldi og ég áttaði mig engan veginn á því á þessum tíma. Ég ætlaði aldrei að segja frá, hann var vinur foreldra minna.
Stórmót framundan og enginn þjálfari
Daginn eftir að ég sagði frá þessu var hann rekinn. Hinar stelpurnar sögðu líka frá. Við vorum allar kallaðar á fund af stjórn félagsins og spurðar hvort við vildum stíga fram. Þjálfarinn krafðist skýringa af hverju hann var rekinn. Vegna þess bökkuðum við allar út og vildum ekki segja frá.
Þetta var mjög skyndileg ákvörðun hjá fimleikafélagi að segja upp þjálfara rétt fyrir mót. Fólk í kringum okkur vissi að það var ekki allt í lagi. Fimleikasambandið hafði aldrei samband við mig eða stelpurnar til að athuga hvort allt væri með feldu. Af hverju tékkaði enginn á okkur?!
Eftir fundinn fer ég heim og hágrét, mér finnst allt vera mér að kenna. Það er að koma stórt mót, við þjálfaralausar en vorum með besta þjálfarann nokkrum dögum áður. Mér fannst ég vera að eyðileggja allt. Eftir þetta var mikil óvissa. Margar hættu og ég kenndi mér um það. En eftir að ég hætti hjá þessum þjálfara þá urðu fimleikarnir mínir miklu betri fyrir mig.
Kenndi mér hvernig þjálfari ég vil vera
Fyrir stuttu töluðum við fimleikastelpurnar saman um þennan tíma. Þær voru með miklu fleiri sögur sem ég gerði mér ekki grein fyrir um þjálfarann.
Fólk sem beitir ofbeldi veit hvernig það nær fólki á sitt band. Hjá mér seldi hann mér hugmyndina að árangrinum sem ég ætlaði að ná. Ef ég fer eftir þessu æfingaplani þá mun ég komast á þetta stórmót.
Ég sé hvað þetta gerði mig sterka en vil ekki hafa þurft að fara í gegnum þetta. Sjálfstraustið mitt var ekki gott og hvernig ég leit á sjálfa mig á þessum tíma. Ég leit upp til þessara hjóna og er þeim þakklát. En ég hefði vilja sleppa þessum hluta þar sem ég var brotin niður í staðinn fyrir að byggja mig upp. Að þau hefðu sleppt að taka vandamálin með í vinnuna og láta þau bitna á okkur til dæmis.
Samt sem áður kenndi þetta mér hvernig þjálfari ég vil vera, ég vil frekar byggja stelpurnar mínar upp sem ég er að þjálfa. Í staðinn fyrir að heyra að ég væri of mössuð og að strákar vildu mig ekki hefði ég viljað fá þau skilaboð að það er í lagi að vera sterk og mössuð.