#Frásögn
Fótbolti – Fram – 2016
Áhugi stjórnarmanna lítill á kvennaliði
Umfjöllun Rúv:
Eftir að tímabili Meistaraflokks kvenna í Fram lauk í ágúst var það orðið ljóst að þjálfarinn myndi ekki halda áfram með liðið þar sem hans samningur var útrunnin og hann tók við öðrum spennandiverkefnum. Við tók hlé á æfingartíma eins og gengur og gerist og við átti að taka leit að nýjum þjálfara.
Þegar þessi grein er rituð er komin 22.nóvember og engin niðurstaða komin í málið. Kjarninn sem hefur áhuga á að halda áfram eru um 10 leikmenn og eru þeir orðnir verulega þreyttir að fá engin svör. Ítrekað hafa leikmenn óskað eftir svörum um framhaldið en lítil sem engin svör að fá. Vandamálið er þó ekki að engan þjálfara sé að finna en að vitund leikmanna hafa nú þegar tveir þjálfarar sýnt starfinu áhuga. Það er greinilegt að forgangsatriði félagsins sé á meistaraflokk karla en þar er þjálfari, aðstoðarþjálfari og hefur liðið verið að sanka að sér leikmönnum fyrir næsta tímabil ásamt því að liðið er komið á fullt í æfingum og nú þegar búið að skipuleggja æfingaleiki. Á meðan situr meistaraflokkur kvenna á hakanum og kjarninn sem vill ekki gefa upp bátinn mætir og reynir að halda hópnum saman tvo daga í viku.
Áhugi stjórnarmanna virðist lítill sem enginn og hafa leikmenn það á tilfinninguni að kvennaboltinn sé ekki það sem félagið leggur áherslu á. Fyrir jafn stórt félag og Fram er hefði maður ætlað að þeir vilji vera með gott starf í meistaraflokki kvenna þar sem yngri leikmenn hafa að einhverju að stefna og líta upp til en sú er ekki raunin í dag. Eins og staðan er í dag hefur meiri hluti leikmanna leitt hugann á önnur mið og fundið sér ný félög. Árið er 2016, kjarninn af stelpum sem vilja spila saman er til staðar en áhugi félagsins er enginn. Þetta höfum við því miður fundið alltof mikið fyrir og farið versnandi eftir því sem líður á. Munurinn á umgjörð meistaraflokkanna er gríðarlegur en á meðan allir leikmenn meistaraflokks karla eru með samninga, þvott á æfingarfatnaði, sjúkraþjálfara á æfingum, tvo þjálfara auk markmannsþjálfara eru aðeins nokkrar í meistaraflokki kvenna með samning, voru með einn þjálfara en eins og er engan og einn sjúkraþjálfara aðeins á leikjum yfir sumartímann. Eins og við höfum nefnt hafa leikmenn mætt sjálfar á æfingar frá því í október og stjórnað þeim, án þess að nokkur stjórnarmaður félagsins hafi sett út á það eða fengið nokkurn mann til aðstoðar á þessu „tímabundna” ástandi.
Leikmönnum meistaraflokks er nóg boðið og viljum við vekja athygli á þessu. Ef fáar sem engar stelpur hefðu áhuga á að æfa væri skilningurinn meiri en það sorglega er að svo er ekki. Hver er framtíð félagsins og hver er framtíð ungra og efnilegra kvenna í félaginu.
Kveðja
Mfl. Kvk Fram
Upplifun þeirra í meistaraflokki kvenna er nóg boðið og vilja halda Fram liðinu á lífi.
Hvað gerist við uppbyggingarstarf yngri kvennaflokka Fram þar sem er engin meistaraflokkur kvenna? Það eru engar fyrirmyndir sem hægt er að líta upp til. Stjórnin sýnir ekki í verki að byggja upp kvennastarfið. Þó að stjórnin tali um að vilja byggja upp stelpuflokka.
Karlegamegin er búið að skipuleggja fjóra æfingaleiki, þeir eru búnir að fá nýja leikmenn, eru með þjálfara, aðstoðarþjálafara, markmannsþjálfara, sjúkraþjálfara. Stelpurnar í meistaraflokki Fram, hafa reynt að hafa áhrif á stjórnina til að fá nýjan þjálfara. En fá engin svör. Sumar af stelpunum eru farnar að æfa með öðrum liðum, vegna þess að það er ekki komin nýr þjálfari.